Umsagnir kúnna

Inga
Við höfum nokkrum sinnum farið í myndatöku með fjölskylduna til Einars og við erum alltaf jafn ánægð. Hann hefur svo góða nærveru og nær að gera myndatökurnar svo skemmtilegar. Börnin voru smá feimin við myndavélina fyrst en það tók Einar enga stund að láta þau gleyma því.
Frábær ljósmyndari, létt og góð stemmning.
Mæli 100% með Einari.

Hildigunnur Eldjárn
Stórkostlegar myndir með fjögur börn og fjögur fullorðin. Ljósmyndarinn tók sér góðan tíma fyrir alla og við upplifðum enga pressu þó börnin væru krefjandi á köflum!

Hilda Björk
Einar var með svo þægilega nærveru og frábært að hafa hann með okkur á þessum degi. Hann náði svo vel til barnanna sem skipti mig gríðarlega miklu máli. Myndirnar voru æðislegar og komu svo mikið betur út en ég hafði þorað að vona. Við erum enginn módel en honum tókst að fanga öll réttu augnablikin yfir daginn á svo fallegan máta.

Hulda Vigdísardóttir
Það var frábært að koma í myndatöku til Einars. Hann er rosalega fær og það er dýrmætt að eiga þessar fallegu myndir. Hann náði svo vel til 2 ára sonar míns og skapaði þægilegt andrúmsloft. Stúdíóið var líka mjög skemmtilegt og vel staðsett. Við fjölskyldan mælum hiklaust með því að fara til hans í barna- og/eða fjölskyldumyndatöku. Hann er frábær ljósmyndari!

Fanney Dögg Jensen
Ótrúlega metnaðarfullur ljósmyndari og með þægilega nærveru, við skemmtum okkur mjög vel í myndatökunni og okkur leið mjög vel allan tímann þótt við séum ekki vön myndatökum!

Helga Húnfjörð
Frábær myndataka. Alls ekki uppstillt og stíf eins og getur orðið heldur bara frjálsleg og leið mjög vel allan tímann eins og við og makinn minn værum bara að njóta tvö saman. Svo skemmtilegt og gaman! :))

Ísabella
Það var tekið vel á móti okkur , opin og skemmtilegur ljósmyndari. Mjög almennilegur og ekki amarlegt að geta fengið sér vatnssopa eða kaffi á milli mynda ☕️🧊

Ingibjörg Sædís
Við vorum ótrúlega heppin að Einar var laus á brúðkaupsdaginn okkar, því að við ákváðum dagsetningu og buðum í veislu með minna en tveggja mánaða fyrirvara. Öll samskipti voru snögg og góð, hann var skýr með allar upplýsingar og mætti vel undirbúinn og tímanlega á daginn sjálfan. Ég og maðurinn minn erum bæði smá vandræðaleg á myndum, en Einar var góður í að leiðbeina okkur í myndatökunni sjálfri og svo var hann líka bara með svo þægilega nærveru. Myndirnar voru svo að sjálfsögðu frábærar og við mælum heils


